Drift Deild

Driftdeild AÍH (Akstursíþróttafélags Hafnarfjarðar) var stofnuð 2009 og er sú deild félagsins sem stækkar hvað hraðast.

Félagið stendur fyrir Íslandsmótum í Drifti.


Driftdeildin stendur fyrir æfingum á föstudögum á braut AÍH í kapelluhrauni.

Hvað er Drift?

Drift er akstursíþrótt sem gengur út á að láta bílinn reka eða renna út á hlið í gegnum fyrirfram ákveðna braut, semsagt að þvinga afturenda bílsins út á hlið með hjálp handbremsu eða afli í afturhjólum bílsins, ökumaðurinn á svo að hafa stjórn á bílnum á meðan á þessu stendur, semsagt hversu mikil gráða á afturenda verður og hversu hratt hann fer.

Með það að takmarki að spóla í gegnum brautina án þess að snúa bílnum eða reka sig í uppsettar hindranir sem eru oftast keilur.

Brautin saman stendur af 3-5 beygjum sem dómarar hverrar keppni ákveða í upphafi keppnisdags og fá því allir ökumenn jafna möguleika að læra á brautina.

Keppnir í “drift” eru keyrðar sem útsláttakeppnir, ökumenn keyra fyrst upphitunarhringi og keyra svo eina umferð sem dæmd er og þeim raðað í röð, síðan eru þeir látinir “keyra saman” tveir og tveir á móti hverjum öðrum og slær sá aðili þann út sem stendur sig betur og hlýtur fleirri stig. Svo að lokum stendur einn uppi sem sigurvegari.

Í keppnum er ekki keppt við klukku heldur eru dómarar sem dæma keppendur meðal annars út frá hliðarskriði bílanna, hraða, nálægð við kanta eða keilur og hvernig ökumaður tengir á milli beygja með hliðarskriði.

Þrír keppnisflokkar eru í drifti

      • Minni götubílar : Skráningarskyld ökutæki á númerum og með fulla skoðun frá viðurkenndri skoðunarstöð. Hámarks afl er 300 hestöfl við hjól samkvæmt aflmælingu viðurkenndri af AKÍS.
      • Götubílar: Skráningarskyld ökutæki á númerum og með fulla skoðun frá viðurkenndri skoðunarstöð. Sé ökutæki ekki á númerum skal keppandi framvísa vottorði fyrir bremsum og stýrisgangi frá
        viðurkenndri skoðunarstöð. Dekk skulu ekki vera breiðari en 225mm
      • Opinn Flokkur: Skráningarskyld ökutæki á númerum og með fulla skoðun frá viðurkenndri skoðunarstöð.Sé ökutæki ekki á númerum skal keppandi framvísa vottorði fyrir bremsum og stýrisgangi frá
        viðurkenndri skoðunarstöð. Dekk skulu ekki vera breiðari en 285mm. Hans búnaður skylda. AKÍS vottað veltibúr skylda.

Opni flokkurinn er eini flokkurinn þar sem tveir keyra saman (tandem). Þegar það er keyrt tandem er alltaf einn á undan og einn á eftir og svo skiptast þeir á. Þegar það er verið að dæma tandem er borið saman og dæmt þegar báðir ökumenn voru að keyra fyrir framan svo er dæmt þegar báðir ökumenn keyrðu á eftir.