Lög og Reglur AÍH
LÖG OG REGLUR AÍH
1. Nafn, heimili, tilgangur.
1.1. Félagið heitir Akstursíþróttafélag
Hafnarfjarðar.
1.2. Heimili og varnarþing þess er í
Hafnarfirði.
1.3. Félagið er aðili að Íþrótta- og
Ólympíusambandi Íslands (ÍSÍ) og sérsamböndum þess og Íþróttabandalagi
Hafnarfjarðar (ÍBH) og sérráðum þess, eftir því sem við á hverju sinni og er
háð lögum þessara samtaka og ákvörðunum.
1.4. Tilgangur félagsins er:
1.4.1. Að vinna að uppbyggingu
akstursíþrótta í Hafnarfirði
1.4.2. Að iðka akstursíþróttir sem er einn
af megintilgangi félagsins
1.4.3. Félagar geta þeir orðið sem æskja
þess.
2. Stjórn.
2.1.
1.
Stjórn félagsins skal skipuð
sex aðilum auk tveggja varamanna
2.
Stjórnin skiptist í
formann, varaformann, gjaldkera og
meðstjórnendur.
3.
Stjórn er heimilt að skipta með
sér verkum.
4.
Kosið skal í stjórn sérstaklega
um hverja stöðu
5.
Formann skal kjósa til þriggja
ára í senn
6.
Gjaldkera skal kjósa til
tveggja ára í senn
7.
Varaformann skal kjósa til
tveggja ára í senn
8.
Meðstjórnendur skal kjósa í
eitt ár í senn
9.
Varamenn í stjórn skal kjósa
tile ins árs í senn
2.2. Málefnum félagsins er stjórnað af:
2.2.1. Aðalfundi félagsins,
2.2.2. Aðalstjórn félagsins,
3. Aðalfundur.
3.1. Aðalfundur félagsins fer með æðsta
vald í málefnum þess.
3.2. Rétt til setu á aðalfundi hafa allir
skuldlausir félagar. 18 ára og eldri eru kjörgengir til stjórnarstarfa og hafa
tillögurétt og málfrelsi á aðalfundi félagsins.
3.3. Aðalfund skal halda í febrúar mánuði
ár hver. Boða skal til aðalfundar með minnst 30 daga fyrirvara með auglýsingu
eða tilkynningu á vefsvæðum íþróttadeilda og félagsins.
3.4. Málefni sem félagar óska eftir að
tekin verði fyrir á aðalfundi, skulu vera tilkynnt stjórn félagsins í síðasta
lagi tveimur vikum fyrir fundinn.
3.5. Stjórn félagsins skal tilkynna dagskrá
aðalfundar viku fyrir fundinn.
3.6. Aðalfundur er löglegur, ef löglega
hefur verið til hans boðað.
3.7. Atkvæðisrétt á aðalfundi hafa einungis
eftirtaldir:
3.7.1. Allir aðalmenn og varamenn í
aðalstjórn félagsins
3.8. Kjörgengir fulltrúar á aðalfundi skulu
vera skuldlausir við félagið, 18 ára og eldri.
4. Aukaaðalfundur.
4.1. Aukaaðalfund má halda, ef nauðsyn
krefur eða ef 1/3 hluti aðila/félaga óskar þess.
4.2. Alla boðunar- og tilkynningarfresti
til aukaaðalfundar má hafa helmingi styttri en til reglulegs aðalfundar.
4.3. Fulltrúar á aukaaðalfundi eru þeir
sömu og voru á næsta reglulegum aðalfundi á undan og gilda sömu kjörbréf, nema
einhver hafi látist eða sé veikur.
4.4. Á aukaaðalfundi má ekki gera
lagabreytingar og aðeins kjósa bráðabirgðastjórn
4.5. Að öðru leyti gilda sömu reglur og um
aðalfund.
5. Dagskrá aðalfundar.
5.1. Aðalfundur. (helstu störf/dagskrá).
5.2. Setning.
5.3. Kosnir fastir starfsmenn.
5.4. Fráfarandi stjórn gefur skýrslu.
5.5. Gjaldkeri leggur fram endurskoðaða
reikninga síðasta árs.
5.6. Umræða um skýrslur, afgreiðsla
reikninga.
5.7. Stjórnin leggur fram fjárhagsáætlun
fyrir næsta ár.
5.8. Lagðar fram tillögur að
lagabreytingum.
5.9. Aðrar tillögur sem borist hafa til
stjórnar.
5.10. Þinghlé.
5.11. Nefndaálit og atkvæðagreiðslur um
tillögur.
5.12. Kosning stjórnar.
5.13. Önnur mál.
5.14. Fundargerð lesin.
5.15. Fundarslit.
6. Önnur ákvæði um aðalfund.
6.1. Kosningar skulu vera leynilegar.
6.2. Heimilt er að endurkjósa stjórnarmenn,
en þó skulu þeir ekki sitja lengur en fjögur ár í senn.
6.3. Einfaldur meirihluti ræður úrslitum,
nema um lagabreytingar sé að ræða.
6.4. Lögum verður ekki breytt nema á
aðalfundi og þá með 2/3 hlutum atkvæða viðstaddra atkvæðisbærra félaga.
6.5. Fundur/þing getur með 2/3 atkvæða
viðstaddra leyft að taka fyrir mál, sem komið er fram eftir að dagskrá þingsins
var send út.
7. Stjórn félagsins.
7.1. Aðalstjórn skal skipuð 6
einstaklingum, formanni, varaformanni,
gjaldkera og meðstjórnanda. Skulu þeir kjörnir á aðalfundi félagsins.
Formaður skal kosinn sérstaklega, en stjórnin skiptir að öðru leyti með sér
verkum.
7.2. Í varastjórn skulu kosnir 2 menn.
7.3. Formaður boðar til funda í aðalstjórn,
þegar hann telur nauðsynlegt, eða ef 2 stjórnarmenn óska þess. Meirihluti
atkvæða ræður úrslitum mála á fundum aðalstjórnar.
8. Starfssvið stjórnar.
8.1. Aðalstjórn félagsins ber að efla
félagið á allan hátt og gæta hagsmuna þess í hvívetna. Hún hefur umráðarétt
yfir öllum eignum félagsins og markar stefnu þess í aðalatriðum. Aðalstjórn
skal skipa alla trúnaðarmenn félagsins aðra en fulltrúa í sérráð ÍBH, fulltrúa
á aðalfundi sérráða ÍBH og ársþing sérsambanda ÍSÍ.
8.2. Kaup og sala fasteigna félagsins er
bundin samþykki 5 af 6 stjórnarmönnum aðalstjórnar. Ef stjórnarmaður forfallast
skal kalla inn fyrsta varamann við slíkar kosningar.
8.3. Aðalstjórn er heimil að ráðstafa eigum
félagsins við hlutafélag til uppbyggingar á íþróttasvæði. Eignarhluti félagsins
má ekki fara undir 51% í hlutafélaginu.
8.4. Aðalstjórn félagsins ber ábyrgð á fjárhad
félagsins í heild.
9. Íþróttadeildir, verkefni
9.1. Innan félagsins geta starfað
sjálfstæðar íþrótta- eða félagsdeildir, sem annast nánar tilgreindan hóp
iðkenda. Innan deilda er heimilt að skipa í ráð sem annast tiltekna hluta
starfsins, svo sem barna og unglingaflokksráð og meistaraflokksráð. Stjórn
deildar skipar í ráð, en eftir atvikum í samráði við aðra sem málið varðar.
Deildum og ráðum er óheimilt að stofna til fjárhagslegra skuldbindinga. Öll
fjármálaumsýsla deilda skal fara fram á vegum aðalstjórnar eða eftir atvikum
rekstrarfélögum.
Stjórnir íþróttadeilda skulu einnig hafa
samráð við aðalstjórn og fá samþykki hennar til heimboða erlenda flokka og
fyrir utanferðum á vegum félagsins.
9.2. Hver íþróttadeild skal halda gjörðabók
um keppnir og annað markvert, sem fram fer innan deildarinnar. Í lok hvers
starfsárs skal það sem markverðast er dregið saman og tekið upp í sameiginlegri
skýrslu félagsins.
9.3. Engin fjárútlát eru heimil án
skriflegrar beiðni frá gjaldkera aðalstjórnar AÍH.
10. Stofnun nýrra íþróttadeilda.
12.1. Komi fram óskir meðal félagsmanna um
stofnun nýrra íþróttadeilda innan félagsins, skal aðalstjórn félagsins taka þær
til athugunnar og leggja þær fyrir næsta aðalfund félagsins. Samþykki
aðalfundur stofnun nýrrar íþróttadeildar, skal aðalstjórn félagsins sjá um
undurbúning að stofnfundi samkvæmd ákvæðum laga þessara um aðalfundi
íþróttadeilda.
13. Félagatal.
13.1. Félagið skal halda skrá yfir félagsmenn deildarinnar.
14. Félagar.
14.1. Meðlimir félagsins eru:
14.1.1. Heiðurfélagar, sbr 14. grein,1.5.2
14.1.2. Ævifélagar,
14.1.3. Virkir félagar í íþróttadeildum,
14.1.4. Aðrir félagar, skráðir hjá
aðalstjórn.
14.1.4.1. Stórfélagar, skráðir hjá
aðalstjórn
14.1.5. Heiðurs og stórfélagar.
14.1.5.1. Heimilt er að kjósa heiðursfélaga
félagsins, og skal tillaga þar um hafa hlotið samþykki aðalfundar eða
aukaaðalfundar með atkvæðum 2/3 hluta atkvæðisbærra fundarmanna.
14.1.5.2. Heiðursfélagar skulu aldrei vera
fleiri en 10 samtímis og skulu hafa náð 45 ára aldri. Heiður þessi er sá æðsti
sem félagið veitir.
14.1.5.3. Stórfélagar er sá aðili sem hefur
stuðlað að verulegri uppbyggingu eða veitt félaginu mikinn stuðning og getur
aðalstjórn, með meirihluta atkvæða, veitt viðkomandi stórfélagsaðild.
15. Félags- og æfingagjöld.
15.1. Aðalfundur félagsins ákveður lágmarks
félagsgjald.
15.2. Heiðursfélagar eru undanþegnir
greiðslu félagsgjalda.
15.3. Ævifélagar greiða til félagsins
samkvæmt sérstakri ákvörðun aðalstjórnar.
15.4. Stórfélagar eru undanþegnir greiðslu
félagsgjalda í 10 ár.
15.5. Stjórn AÍH ákveður upphæð félagsgjalda
og æfingagjalda virkra félaga og annast innheimtu þeirra.
15.6. Þeir sem hafa greitt félagsgjöld
yfirstandandi árs eru fullgildir félagar.
16. Leggja félag niður.
16.1. Tillögur um að leggja félagið niður
má aðeins taka fyrir á lögmætum aðalfundi.
16.2. Til samþykktar þarf minnst 3/4 hluta
atkvæða.
16.3. Sé félagið lagt niður skulu allar
eignir þess varðveittar af Íþróttabandalagi Hafnarfjarðar.
17. Önnur ákvæði
17.1. Um þau atriði, sem ekki eru tekin
fram í lögum þessum, gilda ákvæði í lögum ÍSÍ (eins og á við).